fimmtudagur, september 02, 2004
How are you feeling in your grandmothers trousers?
Jájá, ég sagði þetta nú bara í tilefni af enskuprófinu sem ég er að fara í á morgun.. Fyrsta prófið mitt í menntaskóla! :O
Jájá, þetta verður nú stutt hérna, ég þarf að fara að fara til hennar Herborgar því að við erum að fara á eitthvða busadæmi niðrí skóla bráðum. Síðan var Þjóðminjasafnið opnað í gær sem var alveg magnað! Hellingur af frægu fólki þarna og svona.. =) Það sem var samt fyndnast var að í DV eða eitthvað þannig í dag stóð að fyrirfólk íslensks samfélags hafi komið á opnunina og það var mjög skemmtilegt. :D Jájá, svo var ég að sjá mömmu í fyrsta skipti í svona fjóra daga á þriðjudaginn held ég, það var afskaplega skemmtilegt líka. :) Síðan er samt hellingur að gerast, hellingur að læra heima, busaferðin um helgina, aðalfundur CISV á þriðjudaginn, busadagurinn og busaballið á fimmtudaginn, CISV útilega helgina eftir það og bara allt að gerast! :)
Kex.
Kolbrún
at
8:15 e.h.
Komment -