miðvikudagur, júlí 14, 2004
Núna eru slétt 11 dagar síðan ég bloggaði seinast og mér finnst það alveg magnað. Eða eitthvað. Ég er komin heim af Kjalarnesinu og er að fara til Spánar á morgun. Það gæti nú samt verið að ég hitti eitthvað af fólkinu af Kjalarnesinu eftir að ég er komin heim. Það væri nú skemmtilegt, ha. En já, það gerðist margt skemmtilegt þarna uppfrá, til dæmis fórum við í Bláa lónið í gær í versta veðri sem hugsast getur, rigningu, kulda og roki. Og svo er sól í dag, hversu týpískt sem það er. Það var hinsvegar mjög gott veður þegar við fórum á Þingvelli og útlendingarnir alveg að missa sig yfir Geysi. Svo hlustuðum við mikið á Dr. Bombay í eldhúsinu sem var auðvitað ákaflega skemmtilegt! :D Fyrir þann óupplýsta hluta mannkynsins sem veit ekki hvað Dr. Bombay er þá er það einhver wannabe indverji sem var ákaflega vinsæll meðal 7-9 ára barna í Svíþjóð þegar ég bjó þar og var 7-9 ára. Ég fékk diskinn hans í afmælisgjöf þegar ég var 8 eða 9 ára og dýrkaði hann alveg útaf lífinu. En svo ég snúi mér að öðru þá er ég semsagt að fara til Spánar sem verður örugglega alveg magnað. Þar mun ég dveljast í 2 vikur og hafa gaman af. En núna þarf ég að fara að pakka.
Kex.
Kolbrún
at
1:15 e.h.
Komment -
laugardagur, júlí 03, 2004
Góðan daginn góðir hálsar.
Þetta hérna verður líka stutt þar sem að ég þarf að fara að drífa mig að elda súpu handa 20 manns.. Ég er semsagt komin á Kjalarnesið með henni Herborgu þar sem við hyggjumst elda dýrindis kræsingar oní skrilljón glorhungraða krakkaorma. Við erum semsagt Kitcehn Staff í 11 ára búðunum hérna þetta árið! (
CISV) Það er ákaflega gaman og mikið stuð. Þess má geta að við fengum 6 1/2 tíma svefn í nótt þar sem að við fórum að sofa klukkan 4. Það var samt engan veginn okkar sök því að hún Lísa (staff) stakk af með dótið okkar og lykilinn að herbeginu okkar! (til að ná í jórdana útá flugvöll, hugga litla norska stelpu með heimþrá og ná í dótið sitt.) Þannig að við sátum og föndruðum til u.þ.b. hálf þrjú og núna er húsið fullt af föndri eftir okkur sem er nú reyndar misflott og versnaði eftir því sem leið á nóttina. Þegar við loksins vöknuðum þá var morgunmaturinn búinn og glæstar áætlanir okkar um stórglæsilegan og girnilegan morgunmat sem við ætluðum að gera handa þeim fóru út um þúfur. Síðan voru þau líka búin með öll eplin..sniff..
Núna er hinsvegar kominn tími á súpuna þannig að við þurfum að þjóta.
Kex.
Kolbrún
at
12:01 e.h.
Komment -