:
maystar design
M

kolbrún þóra
þriðjudagur, júní 22, 2004
Okey, ég ætla að reyna að hafa þetta ekkert of langt, bæði svo að Gummi greyið drepist ekki og afþví að ég þarf að fara að sofa..
Ég er held ég ekkert búin að blogga síðan ég byrjaði að vinna, og þið verðið bara að fyrirgefa, þessir krakkar eru nefnilega svolítið pirrandi stundum.. En ég nenni ekki að skrifa um allt sem er búið að gerast þannig að hérna kemur bara eitthvað sem ég man eftir núna: (ekki endilega í réttri tímaröð)

-Þegar hann Davíð (strákurinn sem er að vinna með mér og Herborgu) hitti okkur fyrst vorum við nýbúnar að finna svona balletpils einhvernveginn í búningaherberginu í Barnabergi og vorum á einhverju svakalegu flippi og hlógum eins og vitleysingar. Ég held hann hafi orðið örlítið hræddur við okkur..

-Svo var CISV-grillkveld í Heiðmörk núna um daginn þar sem ca 45 % af stjórn SÚFÍ sáu um leiki af mikilli snilld og ég og Herborg grilluðum einvherjar furðulegar pylsur sem Herborg valdi.. Það voru nefnilega ekki til SS pylsur í Bónus þegar við vorum að kaupa í matinn þannig að við urðum að kaupa þetta. :) Þær voru samt ágætar.

-Á námskeiðinu sem ég vinn á er dansari frá Hollandi sem er leiðbeinandi og hann var að láta krakkana dansa við Elvis lög í dag! Ég og Herborg vorum auðvitað með og sýndum milka takta.

-Á 17. júní fórum ég, Herborg, Gerður, Halldór og Alli á harmonikkuballið í Ráðhúsinu og það var mjög skemmtilegt, ég og Herborg sýndum mikla danstakta eins og venjulega og tókum einn vals.

-Ég og Axel erum örugglega búin að fitna um nokkur kíló af ísáti enda hef ég sjaldan borðað jafn mikinn ís í einum júní. Það er samt bara ágætt :D

-Herborg er ofsótt af litlum stelpum sem heita Ingibjörg og Saga. Sem betur fer er ég ekki nógu skemmtileg við krakkana til að vera það líka.

-Stelpa sem heitir Elísa sagði mér í dag að ég væri frekja, það var mjög fyndiðð því að frekari manneskju en hana hef ég örugglega ekki hitt. Það má bæta því við að hún sagði þetta þegar hún neitaði að fara í röð efir matinn og notaði semsagt ástæðuna að ég væri frek. Það endaði með því að ég hélt á henni í röðina og missti hana næstumþví á leiðinni. Það var samt viljandi..

-Ég vann Herborgu 6 sinnum í röð í skítakalli á meðan krakkarnir voru að borða! Undir lokin voru reyndar allir krakkarnir búnir að borða og farnir að horfa á okkur..

-Ég vann 7 tíma á laugardaginn, mestmegnis við að taka til eftir krakkana.. úff, það var ekki gaman.. Ég hef samt aldrei borðað eins mikið af salthnetum og súkkulaðirúsínum og þá.

-Það var held ég slegið met í kommentum á seinustu færslu, 12 komment, ég hvet ykkur öll til að bæta það met!

-Ég sá gamla konu á 17. júní sem var í rauðri kápu, fjólubláu síðu pilsi, laxableikum ullarsokkum, sandölum og með stóran hatt með slaufu á að dansa þegar Enmsími voru að spila. Það var ákaflega fyndið og ég held að hún hafi verið hippi á sínum yngri árum.

-Ég get skrifað helling í viðbót en ég ætla að fara að sofa..

Góða nótt...
Kolbrún at 11:30 e.h.

Komment -

þriðjudagur, júní 08, 2004
jaaaaæja, það er svo mikið búið að gerast um helgina að ég nenni varla að skrifa það niður... ég held það hafi tekið mið svona korter að segja herborgu frá því öllu, eða svona ca þann tíma sem tekur að labba frá Þróttaraheilinu í Laugardalnum og að TBR, eða aðeins lengra... Ég stytti þetta kannski aðeins :D
Semsagt seinasta föstudag um 5 leytið hoppaði ég uppí rútu með restinni af Gradualekór Langholtskirkju nema svona 10 félagsskítum sem komu ekki með og svo Ragnhildi sem kom seinna. Við brunuðum sem leið lá til Búðardals. Þar héldum við tónleika. Það var alveg svaðaleg mæting eða 7 manns. Það komu reyndar líka 3 strákar inn á miðjum tónleikum en þeir teljast ekki með því að þeir töluðu allan tímann og ég efast stórlega um að það hafi verið um sönginn.. En já, það vill svo skemmtilega til að eftir tónleikana héldum við á Laugar í Sælingsdal og gaurarnir eltu rútuna og voru eitthvað að kíkja á gluggann á hinu herberginu. Ég held að lífið í Búðardal sé frekar einmannalegt fyrst þeir tóku upp á því að elta rútu með kórstelpum út í buskann..
Á Laugum var fínt og ég uppgötvaði að ég hef gist þar í tjaldi einhverntímann í fyrndinni fyrir svona 4 árum eða eitthvað. Svo þegar mig og Ragnhildi langaðiað fara að sofa þá fóru allir hinir krakkarnir í herberginu að öskra og hlaupa um og eitthvað þannig að við gátum ekkert sofnað og það endaði með því að við klikkuðumst smá og ég held að Aðalbjörg verði hrædd við mig til æviloka...
En svo daginn eftir fórum við bara í sund og svo tók við 2 1/2 tími af rútu til Hólmavíkur. Við stoppuðum einu sinni á leiðinni og þar sagði Erla Dóra hina óviðjafnanlegu setningu:
"Ég sit á harðri hundasúru!"
Mér fannst það mjög fyndið.. En við komumst samt heilu og höldnu á Hólmavík og héldum tónleika þar. Þar varð 173% aukning á áheyrendum en þeir reyndust 26 eftir nákvæma talningu. Þegar tónleikarnir voru búnir fórum við í rútuna og brunuðum í Reykjanes. Þar er víst stærsti heitipottur á landinu en því miður nennti ég ekki í hann.. Þess í stað eyddum ég, Ragnhildur, Erla Dóra og Unnur kvöldinu í að syngja Guðnýju til mikils ama. Hún flúði og kom ekki aftur fyrren við vorum næstumþví farnar að sofa. En þetta kvöld kenndi ég þeim hið magnaða lag "Einkall útað slá, bommbommbomm". Allir sem vilja læra það geta haft samband við mig og ég mun halda áfram að breiða út boðskap þessa lags.
Á sunnudaginn vöknuðum við klukkan hálf 7 til þess að geta komið tímanlega í sjómannadagsmessu á Ísafirði sem byrjaði klukkan 11. Þar gerðist það magnaða atvik að kórinn fór allur inn á meðan ég var á klósettinu og ég þurfti að sitja einhverstaðar allt annars staðar en passaði inn í röðina. En það reddaðist allt saman og ég sat á frábærum stað til að geta virt fyrir mér sjómannakórinn sem var mjög áhugaverður. Þar var til dæmis pínulítill og krumpaður kall sem var held ég svona 140 cm og með heyrnatæki í báðum eyrum. Svo sat ég líka við hliðina á Jónsa sem söng svo hátt að ég heyrði ekkert í sjómannakórnum. Eftir messuna héldum við rakleiðis á Langa Manga (lesist með vestfirskum einhljóðaframburði) og borðuðum pasta og kjúlkingajukk. Eftir það fórum ég, Guðný og Ragnhildur að labba og fundum bensínstöð sem heitir Bensínstöðin Ísafirði. Þar keypti ég mér í sem Ragnhildi tókst að missa í jörðina þegar hún var að geyma hann fyrir mig. Það var samt allt í lagi því hún keypti nýjan handa mér. :D Svo fórum við á einhverja tónleika hjá Tónlistarskóla Ísafjarðar og það var alveg ótrúlegt hvað tveir krakkar þarna spiluðu vel á píanó. Það var semsagt alveg magnað en við þurftum að fara í hléinu til að hita upp fyrir okkar eigin tónleika. Þeir heppnuðust svo líka vel og ég held að ég hafi aldrei heyrt Maístjörnuna svona flotta! :D Á þessum tónleikum varð 142% aukning og það komu 64. En eftir tónleikana fórum við í rútunni á friðarstrið Holt og gistum þar og héldum alveg frábæra kvöldvöku þar sem við rifjuðum upp ýmis eldgömul lög eins og t.d. Býfluguna. :D Ég geri ekki ráð fyrir að neinn sem lesi þetta viti hvaða lag það er en það var samt mjög gaman! :D Svo vöknuðum við í morgun og fórum í siglingu um Ísafjarðardjúp og Jökulfirði. Það var mjög gaman líka og við fórum í land á Vigur. Þar fengum við hádegismat sem var heimabakað brauð sem var það besta sem ég hef fengið lengi og blómkálssúpa með blómkálsbitum í sem litu út eins og heilaslettur. Við fengum líka kríuegg sem voru mjög góð líka. Þegar konan kom inn meið þau í skál leit reyndar út fyrir að þetta væru fullt af augum en ég lét það ekkert á mig fá og komst að því að eggjarauða í kríueggjum er skærappelsínugul! Ég og Berglind komumst líka að því að Vigur er ekkert í laginu eins og spjót heldur meira eins og lurkur og endurskírðum við hana Lurkur. Við höfum ákveðið að eyða næstu árum í að ferðast um skóla og stofnanir og breyta nafninu í öllum kortabókum sem við finnum. En svo komum við í land á Reykjanesi þar sem rútan beið og brunuðum í bæinn með smá stoppi á Brú í Hrútafirði.
Við komum um hálf 8 leytið og þar sem útskriftin byrjaði klukkan 8 dreif ég mig heim í sturtu og önnur föt. Útskriftin var mjög skemmtileg, bara tvær ræður og Ninu ræða var sérstaklega flott. Svo voru veitt hellingur af verðlaunum og Herborg fékk íslenskuverðlaun og verðlaun fyrir félagsstarf, Gerður fékk samfélagsfræðiverðlaun og fyrir skólasókn, Hrefna og Dóra fengu fyrir framfarir á skólaárinu, Nina fyrir félagsstarf og ég enskuverðlaun og fyrir besta heildarárangur á grunnskólaprófi í Vogaskóla, með öðrum orðum, ég dúxaði :D
Svo eftir að allir voru búnir að borða kökur, hlæja að myndunum af okkur í 1. bekk og segja bless við alla þá röltum ég og Herborg heim og ég verð að segja að við vorum eins og beljur á vori, það endaði með því að ég fór að blása biðukollum í hárið á henni og svo löbbuðum við á ýmsum grindverkum og svona. Núna er þetta orðið allt of langt og hver sá sem nennti að lesa þetta fær verðlaun!
Kex.
Kolbrún at 1:07 f.h.

Komment -

föstudagur, júní 04, 2004
jæja, seinasti þriðjudagur var fyrir margt skemmtilegur! Meðal annars það að ég fékk einkunnirnar úr samræmdu prófunum. Þar sem ég er viss um að þig langar alveg svakalega að vita þær þá koma þær her:

samfélagsfræði: 8,5
íslenska: 8,5
náttúrufræði: 9
stærðfræði: 9
sænska: 9,5 (tók þetta samt í fyrra, bara skemmtilegra að hafa það með)
enska: 10 :D

Á miðvikudaginn fór ég svo í river-rafting sem er liklegast með því skemmtilegra sme ég hef gert á ævinni! Lögðum semsagt af stað um 12 leytið og keyrðum sem leið lá í bátaskýlið þar sem við fengum alveg svakalega þrönga og skemmtilega búninga, björgunarvesti, hjálm og skó. Þá fórum við eitthvða lengra með rútunni og komum að staðunm sem við fórum útí og einn leiðbeinandanna hélt mjög scary ræðu um öryggisatriði eins og til dæmis að ef við reyndum að standa upp í vatninu þá væri allt búið og við myndum bara deyja...
En svo komumst við loksins af stað og fórum niður helling af flúðum sem voru reyndar mishræðilegar og ég komst að því að þær voru miklu skemmtilegri ef maður öskraði smá með! :D Svo fórum við í helling af leikjum eins og að labba hringinn alveg yst á bátnum sem stuðluðu flest allir að því að einhver dytti oní. Það heppnaðist líka oftast.. Svo í lokinn náðum við að henda leiðbeinandanum okkar, honum Garðari, oní með hjálp Agga sem stökk á hann. Garðar hafði einmitt verið að monta sig af því að engum grunnskólanemendum hefði tekist að hrinda honum oní...
En já, svo komum við uppúr og þurftum að labba heillengi á malarvegi í gúmmískóm sem er ekki þægilegt. Svo grilluðum við og fórum svo í sund í Hveragerði á heimleiðinni.
Í gær fórum við svo í Húsdýragarðinn með vinabekknum okkar sem er 1. bekkur og það var alveg ágætt. Stelpan sem ég var að passa heitir Ágústa og hún gaf mér pulsu! :D Í dag hjóluðum við svo í Nauthólsvíkina og það var mjög skemmtilegt og geðveikt gott veður alveg þangað til það kom rigning.. Og það engin smá rigning, þetta var eins og einhvert monsúnregn í Sómalíu eða eitthvað.. Þannig að við hjóluðum bara til baka aftur og ég fór með Gerði heim til að geta skilað hjólinu sem hún lánaði mér og hún gaf mér brauð með osti og kókómalt. Það var alveg æði! ;) Svo sá ég líka hana Andreu Borg sem er bróðurdóttir hennar Gerðar og hún er tvímælalaust með sætari krökkum sem ég hef séð! Svo tók ég bara strætó heim og fór að pakka og núna er ég alveg að fara til Vestfjarða í kórferðalag! Ég held ða málið um helgina sé án alls efa að skella sér á tónleika hjá Gradualekór Langholtskirkju á Vestfjörðum! Meira um prógrammið getið þið séð í nýjasta tölublaði Birtu! :)
Ég þarf að drífa mig,
kex.
Kolbrún at 4:12 e.h.

Komment -




maystar design