:
maystar design
M

kolbrún þóra
mánudagur, maí 31, 2004
Föstudagurinn var fínn, náttúrufræðiprófið var ágætt þó að eðlisfræðihlutinn hafi verið nokkuð strembinn. EFtir prófið fórum ég og Herborg heim til hennar og bökuðum þessa líka dýrindis köku, 5 hæðir með bláu, grænu og fjólubláu kremi! Magnað alveg hreint. Svo var grillpartýyið hjá Esteri sem var bara fínt, mjög góður matur og sérstaklega eftirmaturinn :) Þegar þetta var búið um 7 leytið fórum ég, Herborg, Gerður, Nina og Hrefna og leigðum okkur harry potter 2 og horfðum á hana heima hjá Herborgu. Hún er skemmtilegri en mig minnti :D Ég komst einnig að því þegar ég horfði á hana að ég er villibíll! En mamma hennar Herborgar keypti svo ís handa okkur sem við gæddum okkur á yfir myndinni.
Á laugardaginn komu svo stelpurnar um 11 leytið og við fórum út um allan bæ með ljósmyndara með okkur sem tók myndir af okkur. Það var ákaflega skemmtilegt og það verður örugglega fyndið að skoða þetta eftir nokkur ár :D Eftir það fórum ég og Nina og keyptum okkur pulsu og skelltum okkur svo í Kolaportið sem var mjög skemmtilegt. Um kvöldið gaf pabbi mér svo pening fyrir ís og ég rölti út í ísbúð og svo eitthvað um hverfið. Úti á skólalóð hitti ég svo Kristján og Dóra og fleiri og Kristján fékk að eiga afganginn af ísnum mínum, sem var ekki nógu gott því að þegar hann var búinn með ísinn fór hann að skjóta steinum í fólk með skeiðinni alveg þangað til að Halldór braut hana. Það reyndist samt ekki góð hugmynd því þá fór hann að kasta steinunum í staðinn og hitti miklu oftar..
Í gær áttu frændi minn og frænka afmæli, þau voru 2 ára! Í tilefni þess fór ég og familían í afmælisveislu til þeirra sem var endalaust sætt :) Þau fengu rennibraut í afmælisgjöf :D:D Ég passaði því miður ekki í hana.. En ég og frændi minn hann Kolbeinn fórum í göngutúr kringum húsið þeirra, hann er svo mikil rúsína.. Svo um kvöldið voru Korn tónleikarnir sem voru mjög skemmtilegir þó að Axel hafi ekki komist.. Fantomas svolítið furðulegir en það var samt fínt, fólk sem byrjaði að púa þá niður sem var alls ekki nógu skemmtilegt.
Svo í dag er ég búin að gera mest lítið, setti samt held ég persónulegt met í að tala í síma, ræddi um heimsins gagn og nauðsynjar í 2 1/2 tíma við Axel. Það var samt mjög skemmtilegt :D Fékk svo grillað lambalæri í kvöldmatinn sem var ótrúlega gott þrátt fyrir smávægilegar brunaskemmdir. :)
Kex.
Kolbrún at 8:52 e.h.

Komment -

fimmtudagur, maí 27, 2004
Jæja, það eru næstumþví 10 dagar síðan ég bloggaði seinast og það er ekki nógu gott. Þannig að ég ákvað að blogga núna þó að ég ætti að vera að læra..
Á fimmtudaginn í seinustu viku fórum ég, Herborg, Hrefna og Nina á Austur-Indíafjelagið svona til að halda upp á samræmduprófa- og grunnskólalok og þar borðaði ég alveg ótrúlega góðan mat, mæli eindregið með þessum stað. Samtals borðuðum við fyrir 16.000 kall...
Svo man ég bara því miður ekkert hvað ég gerði um helgina..þannig að það hefur varla veið mjög merkilegt... eða jú, á föstudagskveldið fór ég með Herborgu á tónleika uppí breiðholti einhversstaðar, þar hittum við Axel og helling fleiri. Svo á laugardaginn kom Axel hingað og við spiluðum örugglega öll spil sem til eru og ég vann í öllu nema núllu held ég :D Svo fór ég til Keflavíkur á sunnudaginn að heimsækja hana Kristínu Birnu sem er nýflutt þangað og ég verð að segja að ég öfunda hana ekkert sérstaklega mikið...
Á mánudaginn var bara venjulegur skóladagur og þá gerðist ekkert merkilegt heldur, nema það að við fórum og fengum okkur ís. En á þriðjudaginn byrjuðu prófin. Til allrar hamingju var dönskupróf þannig að ég svaf til hálf 11 og svo kom Gerður og við skoðuðum milljón myndir sem var mjög skemmtilegt. Svo fórum við bara á fund uppí skóla út af grillpartýinu hjá Esteri enskukennara sem verður á föstudaginn og fórum svo og fengum okkur ís. Þegar við vorum búnar að sitja í ísbúðinni í klukutíma og 45 mín (ég er ekki að ýkja) skelltum við okkur í kringluna með Herborgu. Í gær var svo enskupróf sem var mjög létt bara spurningar og ritgerð úr Shawshank redemption sem við horfðum á í seeinustu viku. Ég var einmitt búin klukkan korter í 9 og prófið byrjaði svona 20 mín yfir 8... Þegar það var búið fór ég í kópavoginn til Axels og við fórum út og fengum okkur ís. Síðan hittum við Sævar og Pétur og sníktum franskar hjá Sævari. Svo kom Maggi líka og við vorum eitthvað úti þangað til Axel og Maggi þurftu að fara á fund og á meðan sat ég úti í góða veðrinu og lærði fyrir samfélagsfræðiprófið sem var áðan. Svo þegar fundurinn var búinn voru þeir samferða mér á badmintonæfingu sem var mjög skemmtilegt. Í dag var svo þjóðfélagsfræðipróf sem var ákaflega létt og eftir það var munnlegt próf í ensku sem var ágætt. Eftir það fórum ég og Gerður og fengum okkur ís. Og hérna sit ég og á að vera að læra en er í tölvunni í staðinn, aðstæður sem ég kannast of vel við...
Kex.
Kolbrún at 4:02 e.h.

Komment -

þriðjudagur, maí 18, 2004
góðan daginn!
Eurovision var, eins og spáð var, stuð. Þó að Íslandi hafi kannski ekki gengið sem best þá var þetta ágætt allt saman. Mér fannst Serbía-svartfjallaland hafa átt að vinna, annars hélt ég líka með póllandi, konan var með svo flotta rödd þó að lagið hafi verið svolítið langdregið..
Eftir eurovisionið sjálft fórum við bara að borða köku og í heita pottinn hjá Gerði. Svo ákváðum við að gista bara og var það mjög skemmtilegt, við röltum út í sjoppu um 2 leytið til að kaupa kristal handa ninu, en líter hafði víst ekki verið nóg fyrir hana um kvöldið, ótrúlegt hvað hún drekkur af þessu miðað við hvað þetta er nú vont...
Við vöknuðum svo við vekjaraklukkuna hennar Gerðar klukkan hálf 1 og horfðum á the O.C. og Boston Public. Svo var kominn tími til að hunskast heim og þá fór ég til Axels þar sem ég fékk að sjá hið margumtalaða, allavegana af Magga, vídeó sem Maggi gerði sem var auðvitað æðislegt þó að ég geri mér nú grein fyrir hvað þau voru að meina með að hann hafi talað of mikið...
Í gær fór ég svo bara í skólann þar sem það skemmtilega atvik gerðist eftir annan tíma að einhver sprautaði einhverskonar piparsprayi útum allt. Það gerði það að verkum að öll unglingadeildin hóstaði eins og ég veit ekki hvað og það var mjög fyndið. Það þurfti að rýma skólann og Kalli í 9. bekk hringdi út um allt í fjölmiðla þannig að þetta kom í fréttunum! Við þurftum samt að fara í tíma og hélt Margrét Eiríks hann bara úti... En það var alltílagi, við fengum bara eitthvað verkefni og máttum svo fara.
Í dag fór ég svo líka í skólann, og það gerðist held ég ekkert merkilegt...
Kex.
Kolbrún at 3:22 e.h.

Komment -

laugardagur, maí 15, 2004
Jæja, eftir 8 tíma svefn og 3 og hálfs tíma metallicabiðröð er ég aðeins hressari!
Já, stutt samantekt,
mér gekk bara ágætlega í samræmdu prófunum, ég gleymdi lokaprófinu í sænsku og fór í sjúkrapróf í staðinn, það var geðveikt gaman í Skorradalnum, nánari ferðasaga er til dæmis hérna og hérna ! Svo skellti ég mér í Metallica röðina í morgun og misreiknaði aðeins veðrið...mér var skítkalt, fann ekkert fyrir tánum á mér lengur :S Þar hitti ég Magga og Lilju sem voru svo svakalega skemmtileg að ég beið í röðinni með þeim og fleirum. :) Lilja og Elva (f?) keyptu svo pizzu sem þær deildu með sér af mikilli hjartagæsku... Maggi ákvað líka að kúka á afgreðsluborðið ef hann fengi ekki miða, en sem betur fer þurfti hann þess ekki...

Svo er bara Eurovision í kveld sem verður örugglega stuð :) Herborg kemst því miður ekki, hún er að Kletti að elta kindur stelpan sú. Sem minnir mig á að ég þarf að fara að drífa mig útí búð...

kex.
Kolbrún at 2:52 e.h.

Komment -

föstudagur, maí 14, 2004
Ég er svo svakalega hress að ég nenni ekki að skrifa neitt þannig að ég ætla að herma eftir Haraldi.
stomp
Oh dear, you horrible person! You are the EVIL one
who stomps spiders and bullies the postman!


What Garfield Personality do you Have?
brought to you by Quizilla

Kolbrún at 11:54 e.h.

Komment -

laugardagur, maí 08, 2004
Var að klára að horfa á Gandhi rétt áðan.
Alveg magnaður kall.
Vildi bara koma því á framfæri, þarf að fara að halda áfram að lesa þessa náttúrufræði...
Kolbrún at 11:06 e.h.

Komment -

fimmtudagur, maí 06, 2004
Hey, já, gleymdi að skrifa það áðan, ég er komin með eitthvað email sem blogger.com eru að prófa og afþví að ég er svo skemmtileg þá fékk ég þannig...:) og það er kolbrrun@gmail.com, endilega senda mér eitthvað, sjá hvort þetta virkar eitthvað!
Kolbrún at 3:05 e.h.

Komment -


Jæja, 3 down 2 to go..
Íslensku-, ensku- og samfélagsfræðiprófið búið! Þá er bara náttúrufræði og stærðfræði eftir.. Mjög þægilegt að þurfa ekki að taka dönskuprófið, planið er að gera ekki neitt í dag og svo þarf ég að fara að læra fyrir náttúrufræði...Svo er samt sænskupróf á laugardaginn, en það reddast :)
Annars er ekki mikið búið að gerast, í gær lærðum ég og Herborg fyrir samfélagsfræði allan daginn...reyndar með smá stoppum þegar við byrjuðum að tala um eitthvað allt annað eða fórum út í ísbúð.
Annars var prófið ekkert svo erfitt, landafræðin svolítið asnaleg og sumar spurningar í sögu og þjóðfélagsfræði en þetta gekk bara vel samt.
Síðan er eftirsamræmduprófaferðin á þriðjudaginn, sem verður nú bara gaman, förum í Skorradal og eitthvað.
Ég er svo að hugsa um að halda áfram að gera ekki neitt, kex.
Kolbrún at 1:48 e.h.

Komment -




maystar design