fimmtudagur, ágúst 26, 2004
Góða kveldið!
Núna er smá tími síðan ég bloggaði..jájá.. En ég er nú ekki ein um það, þannig að það er alltílagi =) *hóst* Axel *hóst*
En já, seinast þegar ég bloggaði var ég að fara að labba Laugaveginn. Sú ferð var nú bara hin skemmtilegasta í alla staði, það var geðveikt veður eiginlega allan tímann! Kom smá pínu rigning einu sinni, svo seinustu tvo dagana var sól og steikjandi hiti! Svíarnir sögðust vilja fá peninginn til baka því að á Íslandi á að vera vont veður =) Þeim fannst nú samt held ég bara ágætt! Svo kvöldið þegar við komum í bæinn var afmæli hjá henni Ninu, var það ágætis afmæli í alla staði og ákaflega góður matur! Svo hitti ég Axel aftur eftir mánuð og það var mjög gaman líka =D Svo þá viku var ég bara eitthvað að slappa af, SÚFÍ fundur á miðvikudaginn, sótti stundatöfluna í MH á fimmtudaginn, töflubreytingu á föstudaginn.. Og hey, ég fékk bæði ENS203 og SÆN203 metið =D Þannig að núna er ég í tveimur 300 áföngum... sem er ákaflega einmannalegt.. Svo fór hún Nina til Kanada á föstudaginn.. það var ákaflega sorglegt... En ég trúi nú ekki öðru en hún muni skemmta sér konunglega þarna úti!
Svo byrjaði skólinn seinasta mánudag, ég komst að því að mamma og pabbi þekkja annan hvern kennara sem ég er með.. eða svona næstumþví... 2 eiginlega bara... en samt =) Mér finnst það magnað. Svo eru kórinntökuprófin á laugardaginn og mánudaginn, vona að ég komist inn og að það virki að vera í 2 kórum...
Hey, já, ég er með einhverjum sem ég þekki í næstumþví öllum tímunum mínum! Kristjáni og Lilju Steinunni í lífsleikni, Axeli í sögu, Kristjáni í stærðfræði og Símoni og Kristínu í íslensku.
En já, ég verð að fara að lesa einhverjar milljón blaðsíður í sögu.. Lifið heil!
Kex!
Kolbrún
at
10:20 e.h.
Komment -
laugardagur, ágúst 07, 2004
Ladída..
Ég er að fara að labba Laugaveginn á morgun =D Við erum búin að vera að pakka og taka til og kaupa í matinn og raða oní kassa og kaupa það sem vantar á fullu í dag.. Í vikunni fórum við með svíana í bláa lónið, gullfoss&geysi og þingvelli og kringluna og hallgrímskirkjuturn og allt þetta túristadót. Það var samt mjög gaman! :D En já, þetta verður í styttra lagi, ég þarf að fara að halda áfram..
Kex.
Kolbrún
at
1:18 f.h.
Komment -
sunnudagur, ágúst 01, 2004
Jæja, þá er ég komin heim frá Spáni! And there was much rejoicing..
Allavegana þá var alveg magnað á Spáni, vorum mestmegnis bara heima samt sko, sundlaug beint fyrir utan húsið okkar og svona =D Svo fór ég í Terra Mítica sem var svona theme park, hellingur af rússíbönum og fallturn og eitthvað. Og ég auðvitað fór í þetta allt og dró Hallveigu með mér! =) Svo fórum við líka í Aqualandia sem er, samkvæmt þeim sjálfum, stærsti vatnsrennibrautagarður í Evrópu sem var snilld! Ég gat reyndar ekki farið í stærstu rennibrautirnar afþví að ég var með hausverk... =( En Hallveig fór og ég horfði á á meðan.
Ég kom svo heim seinasta fimmtudag og þegar ég kom út úr rútunni á BSÍ sá ég bandaríska og filippeyska hópinn úr 11árabúðunum! Þau voru þá á leiðinni í rútuna á flugvöllinn sem ég var að koma úr! Það var mjög gaman að hitta þau, þau öll útgrátin síðan kvöldið áður.. Vá, mig langar svo í búðir! Svo tókst mér líka að týna öllum geisladiskunum mínum á BSÍ.. Ég fattaði það ekki fyrren ég var komin heim og pabbi hringdi á BSÍ og útá flugvöll. Svo fórum við í bíltúr eftir kvöldmat uppí kirkjugarð að skoða nýja legsteininn hjá ömmu og afa og svo gáðum við á BSÍ hvort það vætri búið að finna þetta. Þá hafði þetta fundist útí polli þar sem rúturnar koma.. En það var samt alltílagi með alla diskana og allt þannig að þetta var bara mjög ánægjulegt alltsaman. =) Svo fór ég til Unnar og þar voru Haraldur og Pedro. Við vorum bara þarna að tala saman í nokkra klukkutíma og ég lét Pedro fá Dr. Bombay diskinn sem ég brenndi handa honum! Svo fórum ég og Haraldur og svo fór Pedro heim til sín í Brasilíu daginn eftir.. Það var samt svolítið fyndið þegar ég og Haraldur vorum að fara þá stóðu Unnur og Pedro svona efst í stigaganginum og ég og Haraldur fórum niður svona einn stiga í einu og horfðum svo upp.. En já, þetta var í seinasta skiptið sem ég sá Pedro og bandaríska og filippeyska fólkið og það er frekar ólíklegt að ég hitti þau einhverntímann aftur.. En við skulum bara vona að það sé vitlaust =) Svo á föstudaginn var ég bara eitthvað að gera ekki neitt... Í gær fór ég svo með Hrefnu niðrí bæ og við ætluðum á Innipúkahátíðina en svo gat Hrefna bara verið í 2 tíma eða eitthvað og langaði ekkert að borga 3000kall fyrir það þanig að við fórum bara og fengum okkur að borða í staðinn =) Svo fór hún og ég settist inná Súfistann og var þar heillengi að borða stærstu súkkulaðikökusneið sem ég hef séð lengi og lesa og eitthvað. Sem var mjög skemmtilegt. Svo í dag er ég bara búin að vera að taka til í herberginu mínu.. Það er mjög leiðinlegt.. En samt ákaflega nauðsynlegt.. Allavegana var fólk sem ekki þekkir nógu vel til þarna inni (semsagt allir aðrir en ég) farið að detta og týnast og eitthvað.. Og þar sem að herbergið mitt er pínulítið þá er það frekar erfitt og ég þurfti að grípa til örþrifaráða.. En það er alltílagi, svíarnir koma á eftir og hún Anna þarf nú að komast fyrir hérna.. En já, þetta er orðið alltof langt og ég þarf að halda áfram að taka til þannig að ég kveð að sinni!
Kex.
Kolbrún
at
7:59 e.h.
Komment -