þriðjudagur, apríl 27, 2004
Ég er skrúfjárn.
Ég uppgötvaði það svona:
Ég og Herborg vorum að baka köku áðan.
H: settu meira krem!
K: er ég bara verkfæri í þínum augum?
H: já, ég lít á þig sem skrúfjárn.
Þannig að, ég er skrúfjárn..
En hinsvegar skrúfjárn sem fékk 9,9 á stærðfræðilokaprófi í seiustu viku :D toppið það ;)
Ég og Herborg vorum semsagt að baka köku áðan, eða réttara sagt, klára köku sem við byrjuðum að baka í gær. Í gær þurfti ég nefnilega að fara heim og við náðum ekki að klára hana. En það gerðum við semsagt áðan, og hún varð geðveikt flott, 5 hæða og allt :D
Við ákváðum líka að stofna svona brúðarkökuþjónustu, við verðum með ýmislegt á boðstólnum, svo sem skakkar kökur, kökur með engum eggjum, kökur með of litlu kremi, kökur með og miklu kremi, kökur með engu hveiti o.fl.
Við væntum þess að þetta verði mjög vinsælt og ég hvet alla sem eru að fara að gifta sig á næstunni að leita til okkar ef ykkur vantar brúðarköku. =D
Svo komumst við líka að því að við hefðum átt að vera uppi á 80's tímabilinu, allavegana miðað við þessa svakalegu danstakta sem við vorum að sýna núna rétt áðan í eldhúsinu hjá Herborgu hlustandi á FM Stjarnan 94,3 :D
Svo eru bara samræmdu allsvakalega að nálgast...þetta er rosalegt!
Kex.
Kolbrún
at
11:43 e.h.
Komment -
miðvikudagur, apríl 21, 2004
God bless mother nature, klappklapp! Já, raining men er skondið lag!
Ég var í prófi í morgun. Það gekk alveg ágætlega, íslenskan er ekkert svo erfið.. Annars er ég voða lítið búin að gera í dag, nema flippa eitthvað með Hallvegu í Sims =D Hún bjó til kall sem hét Hreinn Marteinn Sveinn. Við hlógum í allavegana 20 mínútur að því.. Við erum með svo skemmtilegan húmor :D Svo er ég bara að fara í sumarbústað á eftir, það verður örugglega stuð.
Í gær tókst mér að láta næstumþví líða yfir mig... Það var á kóræfingu.. Við vorum í myndatöku fyrir einhverja auglýsingu um tónleikana sem verða 30. apríl. En já, við vorum semsagt í miðri myndatöku, búin að standa samfleytt í 3 tíma, það var æfing á undan, og þar af hálftíma í svona myndatökuljósum. Kallinn ætlaði ekkert að hætta að breyta uppstillingunni.. Og þá bara varð allt svart alltíeinu og mér varð geðveikt heitt og ég varð að fara að setjast... Ég var reyndar ekki búin að borða neitt síðan um 1 leytið og þetta var um klukkan 8. Svo fór ég bara heim og lærði fyrir íslenskuprófið.
Ef ykkur langar að sjá Gradualekór Langholtskirkju gera sig að algjöru fífli þá skulið þið endilega koma á tónleikana.. Hann Jónsi er kominn með æði fyrir að við gerum einhverjar hreyfingar í lögunum sem við syngjum, og hann fékk meiraðsegja einhverja stelpu sem er að læra kóreógrafíu útí Hollandi til að búa til eitthvað fyrir þetta. Stelpan sem leikur ungversku stelpuna í Chicago semsagt. Og afþví að við þurfum að gera þessar hreyfingar þá getum við ekki verið með bækur og þar sem þetta er hálftíma verk finnst mér það helvíti misheppnað. Og það á dönsku... Þannig að ég þarf að fara að stúdera þetta allt saman til þess að geta munað hvað ég á að syngja OG hreyfingarnar líka... Semsagt, 30. apríl klukkan 5 fyrir þá sem hafa áhuga...
Kex.
Kolbrún
at
2:13 e.h.
Komment -
mánudagur, apríl 19, 2004
Ég er að verða búin með páskaeggin mín...og já, ég fékk 3...ég virðist samt vera sú eina sem er ekki komin með ógeð á súkkulaði :)
Síðan er ég farin að hallast að því að ég sé komin með krónískan hausverk.. Ég er með krónískt kvef fyrir þannig að þetta er að öllu leyti ósanngjarnt!
Ég fór að sjá The Passion Of The Christ, eða eins og Gummi orðaði þetta svo skemmtielga; passaðu þig krissi, um helgina. Hún var mögnuð. Og alls ekki fyrir fólk sem er illa við að sjá blóð...það var ekki mikið annað í henni.
Ég gisti líka hjá Hrefnu um helgina, ásamt Herborgu, Gerði og Ninu. Við byrjuðum á því að fara í pílukast, sem ég skíttapaði stórglæsilega í! Svo röltum við um Mosfellsbæinn, keyptum okkur að borða og tókum spólu. Horfðum svo á hana, Thirteen, mjög góð mynd.
Á laugardaginn passaði ég svo Róbert Þorra frænda minn í 2 tíma. Á þeim tíma náði hann að kúka einusinni í koppinn, mjög duglegur :D Þetta fór samt mestallt í buxurnar hans, en við skulum ekki tala um það, hann fékk nú samt 7 súkkulaðirúsínur í verðlaun :D Hann er líka farinn að tala ótrúlega mikið, gat sagt súkkulaðirúsínur og allt þegar hann heimtaði verðlaunin...Honum er farið að svipa til mömmu sinnar sem var víst köllu "Gunnur munnur" í menntaskóla. Hann kom hinsvegar með nýyrði dagsins fyrir allnokkru síðan þegar hann kallaði kennaratyggjó tyggjólím! Það var ótrúlega fyndið!
Það er síðan lokapróf í íslensku á miðvikudaginn, ætti eiginlega að vera að læra núna...
Þannig að það er best að ég geri það bara!
Bless og góða nótt!
Kolbrún
at
9:21 e.h.
Komment -
miðvikudagur, apríl 14, 2004
Úff púff...
Það er mikið búið að gerast síðan á sunnudaginn...
Byrjum á mánudeginum :)
Þar sem að hún Hallveig var að fermast vaknaði ég um 9 leytið og skellti mér í fötin og út í kirkju þar sem ég og Herborg pössuðum sæti fyrir respektive fjölskyldur, það var mjög skemmtilegt, Herborg hitti einhverja konu sem hafði víst verið að vinna á leikskólanum hjá henni! Það skemmtilega var að konan mundi hvað Herborg hét.. Talandi um gott langtímaminni! Síðan kom fólkið og messan byrjaði. Þegar altarisgangan var fór ég þarna Hallveigu til samlætis og vá, ég var búin að gleyma hvað þetta er vont! Ótrúlegt alveg.. Síðan fóru allir heim og mamma og Hallveig og Gunnur upp eftir til ömmu og afa þar sem veislan var á meðan ég og pabbi tókum til við að smyrja flatbrauð. Þegar það var búið fórum við og sóttum fermingarkökuna hennar Hallveigar, þvílíkt flykki, ég var að drepast í úlnliðunum...hvernig sem það er skrifað...
Í veislunni gegndi ég því mikilvæga hlutverki, fyrir utan náttúrulega að vera ótrúlega skemmtileg og svona, að taka af fólkinu og fara með yfirhafnirnar niður í kjallara. Ég mæli hinsvegar ekki með því að labba niður stiga í háhæluðum skóm sem þú ert ekki búin að öðlast mikla reynslu í að labba á. Ég einmitt húrraði beint á hausinn í miðjum stiganum eitt skiptið. Frekar óþægilegt verð ég að segja.
En svo var veislan búin og allir fóru heim og Hallveig opnaði pakkana. Og það sem manneskjan fékk...(ætlaði að skrifa krakkinn en er hún ekki komin í fullorðinna manna tölu? :D) Semsagt, hún fékk stafræna upptökuvél, myndavél, sjónvarp, heimabíókerfi, geislaspilara og ég veit ekki hvað og hvað...
Í gær gerði ég ekki mikið...jú, afi kom með heimabíókerfið hennar systur minnar og ég og Hallveig hentum þessu bara upp og horfðum á Holy Grail og Gladiator allan daginn.
Og svo í dag fór ég bara í skólann og svo heim að borða köku og gera ekki neitt...reyndar las ég eina bók, Gallows Hill síðan í ensku 103, hún er ennþá jafn skemmtileg, ótrúlegt en satt =D Núna ætla ég hinsvegar að fara að sofa og sofa leengi...eða allavegana til 8 á morgun!
Kex.
Kolbrún
at
9:54 e.h.
Komment -
sunnudagur, apríl 11, 2004
Kveldið kæru hálsar!
Hálsar er skemmtilegt orð...eða allavegana skemmtilegur líkamshluti til að tala um fólk, eða þúst, æji þið skiljið þetta...vonandi...
Já, á meðan ég man, gleðilega páska!! :D
Ég fékk 3 páskaegg =D Eitt frá ömmu og afa, eitt frá mömmu og pabba og eitt frá Óla danska! :D Gaman að þessu... Eftir þau og fermingarveisluna hennar Hallveigar á morgun þá verð ég ekki hissa þó að ég vakni einn daginn og þurfi að rúlla mér í staðinn fyrir að labba. Það verður örugglega skemmtilegt! Allavegana í brekkum :D eða, kannski ekki þegar ég er komin niður brekkuna...sérstaklega Sólheimana, það er nefnilega gata neðst þannig að það stefnir allt í að Herborg þurfi að hafa mig bara í bandi þegar við förum í skólann. En hvað með á fimmtudögum! Nei, þetta virkar ekki...ég held ég sleppi því bara að verða eins og bolti í laginu, maybe next time..
Fermingarveislan já, þetta er magnað hvað það er mikið sem þarf að gera fyrir eina veislu, ég er til dæmis búin að vera í allan dag heima hjá ömmu og afa (þar sem veislan er) að strauja dúka, setja kerti þar sem þau eiga að vera, skreyta borðin, raða kaffibollum, finna út úr hvort að þessi dúkur passi þarna eða hvort þessi með blúndunum eigi að vera í staðinn... Síðan þegar ég kom heim áðan fékk ég þennan flotta páskamat, ristað brauð með smjöri... En það var allt í lagi því að páskamaturinn var á skírdag, hamborgarhryggur með kartöflum og fleiru og páskaegg í eftirmat :D Einstaklega gott!
En já, þegar ég var búin með þennan dýrindis veislukost fór ég öllum örugglega til mikillar undrunar að baka fyrir fermingarveisluna.. Eða, kannski ekki baka, ég var að gera einhvernvegin epladæmi, sem fólst í því að skera viðkomandi epli í tvennt, skafa úr því innyflin og láta svo marsipan og súkkulaði þar ofaní! Síðan á að baka þetta í ofni á morgun, örugglega gríðarlega ljúffengt.
Á meðan ég gerði þetta söng ég hástöfum ýmis jólalög, svo sem "Snæfinnur snjókarl", "Senn koma jólin" og "Jólin allstaðar" alveg þangað til að fermingarþeginn sem var víst farinn að sofa bað mig náðarsamlegast um að halda kjafti... Veit ekki með þetta náðarsamlegast samt...
En allavegana, ég ætla að gá hvort pabbi þurfi einhverja hjálp með að skera þetta hangikjöt, hann fékk magnað tæki lánað hjá bróður sínum áðan til að skera þetta niður! :D
Kex
PS. Hvort á að segja brauðrist eða ristavél?
Kolbrún
at
10:49 e.h.
Komment -
mánudagur, apríl 05, 2004
Jámsí, hvað segir þú nú gott? Endilega skrifaðu í comment hvað þú segir gott, mig langar mikið að vita það :D
Annað sem mig langar líka mikið að vita er hvernig er uppáhaldssúkkulaðið þitt? Er það suðusúkkulaði, eða kannski Mars, eða máske finnskt súkkulaði?
Kolbrún
at
9:42 e.h.
Komment -
fimmtudagur, apríl 01, 2004
Jám, það hefur alveg hellingur gerst í dag!
Það byrjaði allt á því að ég vaknaði klukkan 8, sem var mjög þægilegt, skellti mér í skólann og þar fór svona ca 5-10 bekkur á tónleika hjá Sinfóníunni! Það var svosem ágætt, þau spiluðu eitthvað af tónlistinni úr Lord Of The Rings og Djáknanum á Myrká og svona. Gaman að því! Svo fór ég í tvo tíma og svo heim þar sem ég bakaði 2/3 uppskrift af kornflexkökum! Ég fór nefnilega að sofa í gær áður en ég náði að svo mikið sem hella smjörlíki og sírópi í pott.
Síðan þurfti ég að fara í sænsku, og þar sem ég sá fram á að þurfa að labba frá Verzló og aaalla leið niðrí MH í slabbi og drullu þá langaði mig ekkert sérstaklega... Svo þegar ég var loksins komin í strætóskýlið kemur þá ekki hún Ester ensku- og umsjónarkennarinn minn og býðst til þess að skutla mér! Hún var víst næstumþví á leiðinni þarna rétt hjá...
Svo þegar ég kom í sænsku þá kom í ljós að þetta var síðasti tíminn! Fyrir utan að ég þarf að mæta í munnlegt próf 29. apríl og svo lokaprófið 8. maí! Ég þarf reyndar að eyða dágóðum tíma af páskafríinu í að gera heimavinnu sem ég er ekki búin með... Aðrar gleðifréttir í sænskunni voru að ég fékk 9,7 á prófinu sem var í seinustu viku! Nokkuð ánægð með það! Ég fékk samt fyrst 8,1 og svo fór égað skoða prófið og fann bara eitthvað 2 eða 3 villur og þá hafði kennarinn gefið vitlaust fyrir einhver orð sem maður átti að þýða... Gaman að þessu.
Á leiðinni heim í strætó varð ég vitni að svolitlu sjaldgæfu. Strætóbílstjórinn var hvorki með útvarpið á Gufunni né Bylgjunni heldur Xinu! Síðan sýndi hann einnig gott fordæmi og reykti einsog vitlaus maður í hurðinni á strætó þegar hann var að bíða...
Þegar ég kom heim fékk ég mér þennan líka holla og næringarríka kvöldmat sem samanstóð af kókosbollu, hellling af PikNiki og pítubrauði með humus og tómötum. Það var samt mjög gott! Síðan var víst Dansiball niðri í skóla sem ég fór auðvitað á, maður verður nú að styrkja útskriftarferðasjóðinn, en það var meira en margir nenntu að gera því það var alveg afspyrnu léleg mæting á þetta blessaða ball... En það var allt í lagi, það var samt gaman!
Kex.
Kolbrún
at
10:21 e.h.
Komment -
Þar sem að netið hjá mér fór í verkfall í gær og ég skrifaði hellingsblogg þá set ég það bara inn núna...
Hæhæ!
Kvennó er svolítið fyndinn skóli. Ég var einmitt í skólakynningu þar áðan ásamt Herborgu og einhverjum krökkum úr Hveragerði... Það var ágætt, það virtist allavegna hafa verið mjög gaman á árshátíðinni hjá þeim! Í Kvennó, ekki Hveragerði. Síðan eru líka svona að meðaltali 2 bjórkvöld í viku þarna, samkvæmt þessum Ágústi, eða hvað sem hann hét, sem fræddi okkur um félagslífið þarna á bæ. En það breytir því samt ekki að ég ætla í MH!
Eftir skólakynninguna röltum ég og Herborg eitthvað niðri í bæ, þar sem ég fann einkar skemmtilegar buxur sem mig langar í... Ef einhver á 11.000 kall og langar að gleðja mig má sá hinn sami endilega gefa mér buxur! Reyndar fann ég líka tösku sem ég mun kannski kaupa mér á morgun, hver veit.
Síðan eldaði ég einstaklega skemmtilegan fisk í raspi áðan, minnti mig einmitt mjög svo mikið á þann tíma sem ég varði árin 1998-99 í að borða "fiskpinnar", kartöflur og rifnar gulrætur í skólanum í Svíþjóð. Those were the times..
Finnst ykkur ekki pirrandi að vera með lag á heilanum geðveikt lengi og kunna svo ekki allt lagið? Ég er til dæmis búin að vera með Ofboðslega frægur með Stuðmönnum á heilanum í allan dag, og ég kann svona ca tæplega helminginn af því...ekki skemmtilegt... En það lag er einmitt lag dagsins í dag! Og hann Axel var svo yndislegur áðan að senda mér það, þannig að núna get ég hlustað á það daginn inn og daginn út! Svo má enginn gleyma að horfa á Atið á rúv sem byrjar eftir 20 mín, því að Mammút er að spila þar. Núna er þetta hinsvegar orðið allt of langt, ég þarf að fara að gera eitthvað af viti ef ég á að ná að baka fleiri kornflexkökur og fara snemma að sofa líka.
Sjáumst!
Kolbrún!
Kolbrún
at
1:28 e.h.
Komment -