:
maystar design
M

kolbrún þóra
þriðjudagur, mars 30, 2004
Kveldið kæra fólk.
Það sem hefur drifið á dag minn í dag er mestmegnis efnajöfnur, trópí, Axel, Håb, chili con carne, nóatún, djúpur og kornflexkökur. Sem ég þarf einmitt að láta í plastpoka núna þannig að ég get ekki skrifað meira.
Bless.
Kolbrún.
Kolbrún at 10:45 e.h.

Komment -

mánudagur, mars 29, 2004
Kveldið!
Dagurinn í dag byrjaði ósköp rólega á því að pabbi fór til Englands og vakti mig um fimmleytið til að segja bless. Síðan svaf ég áfram alveg til svona 7, sem var yndislegt og vaknaði svo... Og þá fór ég í skólann, var þar til 3 og fór svo í badminton þar sem ég og Herborg rústuðum tveimur þýskum skiptinemum í tvíliðaleik. =D Síðan fórum ég og Herborg og byrjuðum á barnabókinni okkar Robert the Robot sem gengur alveg svakalega vel og við búumst við því að hún verði ein af heitustu jólabókunum næstu jól =D Svo skelltum ég og mamma okkur í sund þar sem við syntum 2 km saman, hún 500 metra og ég 1500 metra. Þetta er einmitt það mesta sem ég hef nokkru sinni synt í einu held ég þannig að ég er gríðarlega stolt af mér... =) En svo fór ég heim, borðaði páskaegg nr. 1 í kvöldmat og hékk svo í tölvunni þangað til núna þegar ég er að fara að sofa..góða nótt!
Kolbrún

PS: lag dagsins er Eric the Half-a-Bee með Monty Python! =D
Kolbrún at 11:00 e.h.

Komment -

laugardagur, mars 27, 2004
Góða kveldið.
Ég biðst afsökunar á bloggleysi mínu undanfarið, en það stafar mestmegnis af tímaskorti og leti. Ég nenni hinsvegar ekki að skrifa niður allt sem ég er búin að gera síðan ég bloggaði seinast, en ef þú vilt endilega vita það þá hringdu bara, ég er í símaskránni. En í dag þá byrjaði ég á því að fara í skólann. Svo fór ég á ofuræfingu þar sem við áttum að hlaupa eins marga hringi í kringum stóra salinn í TBR og við erum gömul. Ég og Herborg vorum 10 ára í dag. Síðan var einhver ofur tvíliðaleikur með 2 boltum sem ég og Herborg töpuðum stórglæsilega í. Eftir það ætlaði ég á úrslitin í Músíktilraunum, en þar sem það var uppselt þá endaði ég á úrslitunum í Morfís þar sem Verzló vann MH með einu stigi í umræðum um hvort að maðurinn væri heimskur eður ei. Verzló mælti á móti og því er ég alveg sannfærð núna um að maðurinn sé ekki heimskur, þó að mér finnist að MH hefði átt að vinna...aðeins of mikið grænt glimmer hjá Verzló fyrir minn smekk. Lifið heil.
Kolbrún

PS. lagið í dag er lagið um "Robert the Robot", sem er barnabók sem ég og Herborg munum gefa út inan tíðar, og athugið, það fylgir snælda með svo að þetta eru hin bestu kaup ;)
Kolbrún at 12:26 f.h.

Komment -

þriðjudagur, mars 09, 2004
Hæhæ. Þetta er búið að vera ágætur dagur, fór í skólann kl 8:10 og var búin 10:30, mjög hentugt að hafa verklega eðlisfræðitíma þar sem helmingurinn fær frí...og dönsku í tímanum á undan...=) Síðan í enskutímanum fluttum ég og Herborg kynninguna okkar um John Cleese, sem heppnaðist alveg ágætlega þrátt fyrir ýmsa tæknilega örðugleika..=) En já, eftir skóla fór ég heim og ætlaði að fara að sofa, en endaði á því að byrja á Harry Potter 5 á íslensku, skondnar þýðingar sumar, er bara búin að lesa hana á ensku. Svo hringdi hún Gerður og tjáði mér þær yndislegu fréttir að það væri ekki árshátíðarnefndarfundur, ekkert illt um þá ágætu nefnd, nennti bara ómögulega á fund.. Og þá fannst mér upplagt að hafa samband við hann Axel sem fékk sér far með gula bílnum og kom í heimsókn. Síðan þurfti ég að fara í kór, kome ekki nema svona 3-5 mín of seint sem hefur held ég ekki gerst heilllengi... en það er samt ekki mér að kenna, það er alltaf eitthvað sem truflar.. =) Í kór hinsvegar fann ég þessa skemmtilegu vísu:

Það á að strýkja strákaling
og stinga honum ofan í kolabing,
loka hann úti í landsynning
og láta hann hlaupa allt um kring.
Það á að strýkja stelpuna
og stinga henni ofan í mykjuna,
loka hana úti og lemja hana
og láta hann bola éta hana.
-Þjóðvísur

Svona voru íslendingar góðir við börnin sín fyrr á tímum..

Svo áðan fórum ég og Herborg að skila spólunni "A Fish Called Wanda" í þessu skemmtilega veðri.. Mæli með myndinni en ekki veðrinu sem ríkir á suðvesturhluta landsins í augnablikinu..

En já, þetta er komið nóg, ég vil að þið hugsið öll um kynjamisréttið í vísunni, af hverju á að lemja stelpuna og láta naut éta hana á meðann strákurinn þarf bara að hlaupa? Endilega svara í yndislega kommentkerfinu sem hann haraldur setti fyrir mid =D

Lag dagsins: Do Re Mi lagið úr Sound Of Music og Hjarta mítt af diskinum Krákan með Eivöru Pálsdóttur!

Kolbrún
Kolbrún at 10:15 e.h.

Komment -

mánudagur, mars 08, 2004
ég hef ekkert að segja núna annað en að mig langar í ananas... ef þú átt ananas sem þú ert tilbúin(n) til að gefa mér og koma með til mín og helst mata mig líka þá færðu verðlaun! ég verð búin að hugsa út hver þau verða áður en þú kemur, þannig að það er um að gera að flýta sér! fyrst(ur) kemur fyrst(ur) fær ;)
kolbrún ananas...
Kolbrún at 11:03 e.h.

Komment -

föstudagur, mars 05, 2004
Hæ hæ, ég sit núna í­ skólanum í­ dönskutí­ma og hef ekkert að gera, og sá þann kost vænstan að blogga bara! =) Það hefur allmikið gerst síðan seinast, ég fór í alveg magnaða súfí­ útilegu, klippingu, þar sem svolítið fyndið gerðist, skrifa um það á eftir og svo er ég að fara í­ sumarbústað á eftir! Síðan fékk ég að vita á kóræfingu á þriðjudaginn að danskt lag, eða verk, sem við erum að syngja verður lí­klegast gefið út á dvd diski! Sem er auðvitað mjög kúl og ég hvet alla sem vettlingi geta valdið til að kaupa þennan magnaða disk þegar hann kemur út ;) Ég meina, hver vill ekki hlamma sér uppí­ sófa á laugardagskvöldi og horfa á Håb með Gradualekór Langholtskirkju?! =D
Já, það sem gerðist þegar ég var í­ klippingu, það var alveg stórskrýtið. Ég sat bara þarna í­ mestu makindum í­ klippingu þegar konan sem hafði þvegið á mér hárið kom og spurði hvort hún mætti aðeins skoða neglurnar á mér! Svo að hún tók til við að þrí­fa af mér naglalakkið og hummaði eitthvað og svona, og spurði síðan hvort ég vildi vera naglamódel fyrir hana því­ að hún er að fara á­ einhverja keppni! ég vissi ekkert hvað ég átti að segja og sagði bara ha, já já og núna þarf ég að fara fyrr úr sumarbústaðnum á laugardaginn, og mæta svo á­ þessa keppni sem ég hef ekki hugmynd um hvar er klukkan 9 um morguninn á sunnudaginn! En þetta verður örugglega skemmtilegt :) Ég vona það allavegana... Hinsvegar er þetta orðið alltof langt og ég efast um að nokkur manneskja nenni að lesa þetta þannig að ég ætla að hætta... En ég vil þakka Haraldi fyrir að hafa látið þetta magnaða skin á =)
Kolbrún !
Kolbrún at 9:20 f.h.

Komment -




maystar design